13.06.2009 00:06:39 / kobbz
Já hvernig er það með mig ha? Ég blogga alveg hrikalega lítið! Stundum hef ég bara ekkert að segja.
En burt séð frá því.
Nú kemur bloggið. Fyrir viku var ég hjá pabba í Reykjavík og við gerðum margt skemmtilegt saman.
t.d. Fórum í fjallgöngu á Esjuna og amma mín kom með
(Hún á bloggsíðuna tumsa.blogcentral.is)
og bróðir hennar Einar.
Öll komumst við á toppinn en Þóra fósturmamma mín átti í smá erfiðleikum
hún er svo svakalega lofthrædd.
En það hafðist á endanum.
þeir sem fóru á Esjuna:
Ég, pabbi, Þóra fósturmamma, amma og Einar bróðir ömmu og Bryndís mágkona ömmu.
Bless í bili meira blogg síðar
»
08.05.2009 23:41:56 / kobbz
Var að koma úr fjárhúsunum og klukkan er 33 mínútur yfir 11 að kvöldi allt gekk bara merkilega vel en það var ein heimsk kind sem var að bera og hún bara stangaði lambið sitt hvað eftir annað af örugglega tilhugsun sem þessari: þetta er ekki lambið mitt! Farðu til þinnar egin mömmu!
Við amma töldum hana stressaða af því að við vorum miklu ókunnugri í hennar augum. Jæja verð að fara að sofa,bless bless í bili meira blogg síðar. 
»
08.05.2009 21:12:02 / kobbz
Já langt er síðan ég bloggaði en nú verður það bætt upp!
Hef ekkert nennt þessu upp á síðkastið
Jæja ég var veikur í 2 daga t.d. í gær og í fyrra dag en nú er ég kominn í sveitina og fylgist með sauðburðnum með ömmu og afa en nú er þetta nóg í bili svo bless í bili!

»
15.08.2008 11:37:21 / kobbz
Jæja eins og ég sagði í gær erum við að fara á ættarmót allir græjaðir held ég og nú á ÆTTARMÓT!
»
14.08.2008 19:39:20 / kobbz
»
21.06.2008 22:29:18 / kobbz
Jæja nú er ég búinn að vera í Reykjavík hjá pabba og Þóru í 9 daga. Og ég er sko ekkert á leiðinni heim. Fer ekki aftur til mömmu fyrr en 25.júlí takk fyrir. Við erum búin að bralla heilmikið saman. Á 17.júní fórum við til Hafnarfjarðar á Víðistaðatúnið. Það var rosalega gaman. Ég fékk að fara í leiktæki sem hét Hringavitleysa. Þá stóð maður inn í svona hring, festur niður með öryggisbelti og fæturnir voru líka festir niður í einskonar ístöðum. Svo voru margir stórir hringir utan um litla hringinn sem ég var festur í og einhver strákur sem stóð þarna hjá og snéri öllu saman. Ég skrækti eins og ég lifandi gat, sérstaklega þegar ég var kominn á hvolf. Pabbi ætlaði alveg að verða vitlaus úr hlátri og ekki var Þóra neitt skárri...hefði verið gaman að sjá þau í þessu tæki. Sérstaklega Þóru, því hún er svo skelfilega lofthrædd
Veðrið var mjög gott, 19 stiga hiti og smá vindur. Ég er búinn að vera duglegur að vera úti og leika mér, kíkja á leikvellina og fótboltavellina hérna í hverfinu. Enda er ég orðinn sólbrúnn og sætur. Í dag kíkti ég með Þóru heim til Berglindar vinkonu hennar...eða sko heim til mömmu hennar. Þar hitti ég Andreu Rut sem er dóttir Berglindar og er 7 ára, Samúel Kristinn og Aron Helga sem eru litlu bræður Berglindar og eru 9 og 7 ára. Við vorum öll út í garði að leika okkur. Samúel og Aron eiga nefnilega kofa í garðinum og þar var ekki leiðinlegt að vera. Þóra fór heim klukkan hálf tvö en ég fékk að vera eftir og leika áfram við krakkana. Kom ekki heim fyrr en klukkan sex. Ég má fara aftur á morgun, þau búa nefnilega í Heiðarási, sem er bara rétt fyrir ofan pabba og Þóru, en þau búa í Dísarási. Jæja nú er ég að fara að horfa á eina teiknimynd áður en ég fer að sofa. Kv Jakob.
»
10.06.2008 11:04:07 / kobbz

Amma tók þátt í kvennahlaupi ísí
tíhí
»
09.06.2008 13:33:30 / kobbz
Við Sproti að þrífa krossarann minn í vor. Krossarinn er heima núna.

»
09.06.2008 12:59:46 / kobbz
»
Síður:
1 2